Sankti Péturskirkja |
Castel Sant'Angelo heillaði
mig upp úr skónum þegar hann blasti við mér á kvöldrölti um Róm. Í kringum hann
ríkti viss næturkyrrð sem var ekki í takt við umferðina í götunni við hliðina.
Það var líkt og hann byggi yfir einhverju dularfullu valdi, tignarleiki hans er
af öðrum toga en glæsilegra bygginganna í kring. Í stutta stund leið mér eins
og ég væri stödd í bíómyndinni Angels and Demons. Hefði náð að smeygja mér inn
um skráargat ævintýrahurðar og nú stæði mér til boða spennandi, óþekktur heimur. Því var
undarleg tilfinning að skilja við Castel Sant’Angelo, labba upp á hótelherbergi
og heilsa upp raunveruleikann.
svo heillandi!
ReplyDelete