Colosseo í Róm náði mér! Ég get í raun ekki lýst tilfinningunni en
saga byggingarinnar er það sterk að hún umlykur þig. Í raun er upplifunin hálf hrikaleg, líkt og óp fórnalamba hringleikahússins
bergmáli enn milli veggjanna. Fagnaðarlæti og múgæsing þess tíma reynir þó að
kaffæra sársaukann. Örvæntingin, niðurlægingin. Mér fannst þó hvað verst að
upplifa hæðnina. Sjá fyrir mér glottin – fyrirlitninguna.
Þú ert stödd á stað þar
sem viðleitni mannskepnunar til þess að halda lífi var gerð að skemmtiefni. Vald
er misnotað. Fólk kom saman til þess að sjá útvalda einstaklinga berjast fyrir
lífi sínu, oftar en ekki dauðadæmda fyrir leik. Svo var fagnað og hlegið, sálir
brotnar niður, étnar af illsku.
...svo satt...
ReplyDeleteMér finnst þú ná að fanga þessar tilfinningar ansi vel í þessum myndum.
takk - ljúflingur*
DeleteÞú ert hreint ótrúlega flottur túlkandi tilfinninga og upplifana!! Er barasta orðlaus...en svo stolt af þér og þínum fjölmörgu hæfileikum! Fellsmúlaknús
ReplyDeleteFrekar yfirþyrmandi staður, já.
ReplyDeleteFallegar myndir, eins og ég er farin að búast við frá þér ;)