Showing posts with label b&w. Show all posts
Showing posts with label b&w. Show all posts

Sunday, April 6, 2014

Heimsókn!

Á laugardaginn pikkaði ég þessa upp á Centrale í Mílanó, Gleði!:



Ég var því fljótlega búin að vísa henni á ítalskt góðgæti! Hér að ofan sjái þið hnátuna Guðrúnu Bertu bragða sinn fyrsta gelato! Vottar fyrir hamingju.


Hvers manns hugljúfi! Bragðlaukaklám.

Guðrún var svo fljótlega farin að pósa spræk með ástföngnum pörum ... átti erfitt með að hemja hana :)


Ég lét hana svo bókstaflega ganga allar merkar götur Mílanóborgar....
Kynnti hana fyrir einum af mínum uppáhaldsstöðum Mílanóborgar, Corso Como (Hendi inn myndum af þeim yndis stað fljótlega!)

Það var svo meira en ljúft að enda laugardagskvöldið, örlítið sveittar á aperirivo í Naviglio! Gúfferí sem klikkar seint.





Í dag eyddum við deginum í 26 stiga hita í Como - Helgin leið hratt! SólskínsSæla! 



Gleð ykkur með Como myndum á morgun. Þangað til er ég nokkuð viss um að svefn sé það gáfulegasta fyrir mig... nóttina sykurfroður:*

Monday, March 31, 2014

Hæðin

Í dag/gær...áðan átti amma Dóra afmæli. Ó hvað ég hefði verið til í að láta fara vel um mig á hæðinni. Vika :) 

Wednesday, March 26, 2014

Flakk













Farið að þykja annsi vænt um þessa pappíra!



Í mér kúldrast þessi sífellda þörf fyrir flakk. Veitir mér alltaf fiðring. Notalegur dagur með meiru! 
Framundan er þó pappírsvinna, skipulag og hugmyndavinna - ég hef alltaf lúmkst gaman af því, þægilegt þegar maður kemst í gírinn. Keppi við klukkuna! 
:*

Monday, March 24, 2014

Fyrsta stopp

Fyrsta stopp gærdagsins. Leiðin sem við reyndum að fylgja eftir leit sirka svona út...


Ítalski sjarmörinn lagði sig fram við að heilla okkur. 

















Sunday, March 23, 2014

Stundir


Ó hvað mig er farið að hlakka til þess að knúsa, eða vera knúsuð af þessum stúf. Þegar stundir sem þessar eru fangaðar er ekki hægt annað en finnast vænt um afurðirnar. Þó sú staðreynd blasi við mér að ég er þrútin og nýkvöknuð þarna - en hef sennilega bara gott af því að horfast í augu við mig;) Pabbi náði þessum myndum síðasta haust  - gamli leynir á sér ;) 
Það styttist í heimkomu enda er ég farin að ranka við mér í tölvuleikjaverslunum að bera saman verð og úrval með bræður mína í huga. Eitthvað sem ég stunda ekki dagsdaglega ;)  Það eru forréttindi að eiga að einstaklinga sem þú getur leyft þér að njóta að dekra við, ég hef hættulega þörf fyrir það. Svo ég ætli ég leyfi ekki nokkrum leikjum að laumast með í ferðatöskuna sem og 1D úrvals ímyndum fyrir uppáhalds gelgjuna mína. 16 dagar í heimkomu - ég ræð ekki við tímann, hann flýgur. 

Saturday, March 22, 2014

vika 11

16. mars, dagur 75 - Sunnudagur til hvíldar:)



17. mars, dagur 76 - Mánudagstvenna. Kvaddi Brunate í bili í morgunsárið.



18. mars, dagur 77 - Þegar ég spreyja hádegismatinn minn..


19. mars, dagur 78 - Blómlegt!


20. mars, dagur 79 - Rólegheit.


21. mars, dagur 80 - Í nótt dreymdi mig að ég hefði farið út úr húsi ómáluð. Þegar ég áttaði mig á þeim óleik hófst feluleikurinn með því markmiði að komast óséð inná næsta almenningsklósett í von um að hafa eitthvað snyrtidót í veskinu. Sá leikur reyndist mér dramatískur en klósettið á lögreglustöðinni á Húsavík bjargaði mér að lokum ...;)  Hér er því sjálfsmynd, eins og mér líður best á kvöldin. Elsku afslappaða Ítalíulífið hefur meira að segja náð að má af mér augabrúnirnar. Indjánaselfie á föstudagskvöldi. 

22. mars, dagur 81 - Leiðin að hjarta sambýlingsins er greið í gegnum súkkulaði!



Brunate í svarthvítu


Dagur í Brunate í svarthvítu. Alltaf jafn einstakt að dvelja þarna. Fæ ekki nóg. 
Annars er allt gott að frétta. Á morgun er ég að fara á flakk með nokkrum bekkjarfélögum mínum. Við ákváðum að leigja bíl og búa til ævintýr. Fátt áhugaverðara en að tækla ítalska umferð með nesti og nýja skó, mögulega náttúruperlur eru plús! Hins vegar hugsaði ég það ekki til enda að rússneskir leiðtogar hópsins myndu vilja leggja af stað fyrir allar aldir...svo ég mun standa, glaðvakandi og brosandi tilbúin við næsta metro klukkan 06:45, já eftir svona 8 klukkustundir ;) Verð spræk. Á eftir að borða laugardagspoppið mitt og horfa á laugardagsbíómynd - Því get ég ekki sleppt.

Kem með fréttir fljótlega. Fréttir eru oft skemmtilegar! Njótið kvöldsins.