Wednesday, November 27, 2013
Kaldur dagur í Milanó
Heitt súkkulaði bjargar köldum dögum. Var grátfegin þegar ég fékk það í hendurnar. Ljúffengt! Þetta var reyndar fyrsti bollinn sem ég smakka af ítölsku súkkulaði, ótrúlegt - en satt! Ég varð ekki fyrir vonbrigðum, þykkt á við súkkulaðibúðing. Nú er ég farin að skilja betur þá fíkn sem ítölsku sambýlingarnir mínir þjást af, malla sér súkkulaði annað hvert kvöld! Íhuga að slást í hópinn...það er jú farið að kólna....
Tuesday, November 26, 2013
Biðin
Bíð eftir aðventunni í Mílanó. Eftir örlítið fitl varð þetta krútt til. Það kúrir núna á kommóðunni og starir á mig. Biðin styttist.
Kveðja frá Milanó
Ó hæ,
Er í einni af þessum yndislegu eyðum sem skreyta skólavikuna mína. Ég ákvað að beita sjálfan mig aga, neita mér um huggulega ferð að borða asískan mat og setjast niður í skólanum og jafnvel læra eitthvað? Allavega setja upp nokkur forrit sem ég þarf að nota í nýja mac krúttinu mínu... jáá eyða pásunni á þann veg. Svo hérna sit ég, á steyptu gólfinu við huggulega innstungu - aðeins of nálægt anddyrinu svo það er talsverður umgangur og reglulega kaldur kustur......og hlusta á lagið hér að ofan. Ég finn fyrir vott af kaldhæðni - en ég hef alltaf heillast af henni. Svooooo ég held það fari bara vel um mig....
Kveðja frá Milanó,
ég.
Sunday, November 24, 2013
Einn af þessum dögum
Sunnudagur&Niépce
Sunnudagsmorgunn og sagan. Hér til hliðar geti þið borið fyrstu ljósmynd sögunnar augum, í afskaplega lélegum gæðum. Njótið :) Hún var tekin í Frakklandi af Joseph Nicéphore Niépce árið 1826. Þeir sem eru virkilega fróðleiksfúsir svona í morgununsárið, klikkið hér! Framundan hjá mér er einn af þessum kraftaverka dögum - ætla lesa allt og gera allt. Vííí. Þannig dagar eru reyndar oft í uppáhaldi hjá mér. Byrgi mig upp af vatni og jólalögum! 26 dagar.... :)Saturday, November 23, 2013
Subscribe to:
Posts (Atom)


