Sunday, March 23, 2014

Stundir


Ó hvað mig er farið að hlakka til þess að knúsa, eða vera knúsuð af þessum stúf. Þegar stundir sem þessar eru fangaðar er ekki hægt annað en finnast vænt um afurðirnar. Þó sú staðreynd blasi við mér að ég er þrútin og nýkvöknuð þarna - en hef sennilega bara gott af því að horfast í augu við mig;) Pabbi náði þessum myndum síðasta haust  - gamli leynir á sér ;) 
Það styttist í heimkomu enda er ég farin að ranka við mér í tölvuleikjaverslunum að bera saman verð og úrval með bræður mína í huga. Eitthvað sem ég stunda ekki dagsdaglega ;)  Það eru forréttindi að eiga að einstaklinga sem þú getur leyft þér að njóta að dekra við, ég hef hættulega þörf fyrir það. Svo ég ætli ég leyfi ekki nokkrum leikjum að laumast með í ferðatöskuna sem og 1D úrvals ímyndum fyrir uppáhalds gelgjuna mína. 16 dagar í heimkomu - ég ræð ekki við tímann, hann flýgur. 

Sunnudagur í Ölpunum


Yndislegur sunnudagur að baki - eyddi stærstum hluta hans í ítölsku Ölpunum. Þeir heilla mig! Þrátt fyrir að vera farin að venjast sólinni hér síðustu daga var notalegt að leyfa snjókornunum að bráðna á nefinu. Lofa myndum og frekari ævintýra lýsingum strax og heilastarfsemin er komin í þokkalegt lag hjá mér. Vottar nefnilega fyrir þreytu. Að ferðast með tveimur Rússum og einum Úkrana fylgir talsverð tímaáætlun en eins og ég nefndi hér áður var lagt snemma af stað í morgun;) Ég nældi mér því í góða fjóra tíma síðustu nótt. Ég og braselíski meistarinn vorum þó pollróleg í dag en hann hafði náð svipuðum svefni. Hefði seint ímyndað mér ferðalag með jafn fjölbreyttum hópi - virkilega áhugaverður dagur í alla staði :)  

Nóttina yndis.

Hversdagsleikinn er fagur


Ástæðan fyrir því að mér líður eins og ég þurfi alltaf að vera með myndavél á mér. Rakst á þessa yndislegu mynd á veraldavefnum. Hlýjar mér. Hversdagsleikinn er oft mjög fagur!

Saturday, March 22, 2014

vika 11

16. mars, dagur 75 - Sunnudagur til hvíldar:)



17. mars, dagur 76 - Mánudagstvenna. Kvaddi Brunate í bili í morgunsárið.



18. mars, dagur 77 - Þegar ég spreyja hádegismatinn minn..


19. mars, dagur 78 - Blómlegt!


20. mars, dagur 79 - Rólegheit.


21. mars, dagur 80 - Í nótt dreymdi mig að ég hefði farið út úr húsi ómáluð. Þegar ég áttaði mig á þeim óleik hófst feluleikurinn með því markmiði að komast óséð inná næsta almenningsklósett í von um að hafa eitthvað snyrtidót í veskinu. Sá leikur reyndist mér dramatískur en klósettið á lögreglustöðinni á Húsavík bjargaði mér að lokum ...;)  Hér er því sjálfsmynd, eins og mér líður best á kvöldin. Elsku afslappaða Ítalíulífið hefur meira að segja náð að má af mér augabrúnirnar. Indjánaselfie á föstudagskvöldi. 

22. mars, dagur 81 - Leiðin að hjarta sambýlingsins er greið í gegnum súkkulaði!



Brunate í svarthvítu


Dagur í Brunate í svarthvítu. Alltaf jafn einstakt að dvelja þarna. Fæ ekki nóg. 
Annars er allt gott að frétta. Á morgun er ég að fara á flakk með nokkrum bekkjarfélögum mínum. Við ákváðum að leigja bíl og búa til ævintýr. Fátt áhugaverðara en að tækla ítalska umferð með nesti og nýja skó, mögulega náttúruperlur eru plús! Hins vegar hugsaði ég það ekki til enda að rússneskir leiðtogar hópsins myndu vilja leggja af stað fyrir allar aldir...svo ég mun standa, glaðvakandi og brosandi tilbúin við næsta metro klukkan 06:45, já eftir svona 8 klukkustundir ;) Verð spræk. Á eftir að borða laugardagspoppið mitt og horfa á laugardagsbíómynd - Því get ég ekki sleppt.

Kem með fréttir fljótlega. Fréttir eru oft skemmtilegar! Njótið kvöldsins.