Showing posts with label snapshots. Show all posts
Showing posts with label snapshots. Show all posts
Monday, April 7, 2014
Thursday, April 3, 2014
Clueless....
Í dag rankaði ég við mér, klædd eins og Ítali! Alvarlegt mál....
Eða eins og vinkona mín benti mér á svolítið í þessum stíl... :
Þarf að passa mig á þessari þróun ;)
Wednesday, March 19, 2014
Poppum'etta
Áfram með matar...klámið. Grautarklám kvöldsins eftir rækt. Grautur, bananar, kanill, sultutau, hafrakex ooooog jógúrt! Jógúrtið endaði þarna vegna rokkarans í mér. Óvænt þróun - en skemmtilegt partí! Náði loksins smá sækórækt eftir tvoooo dauða mánuði! Næst á dagskrá: The Wolf of Wall Street. - Poppum'etta.
Vefjuást
Í dag mun ég kynna fyrir ykkur vefjuna sem heldur í mér lífi. Hún kemst næst því að fullnægja þeirri vefjuþörf sem hrjáir mig. Allt sem er vafið, er gott? Fæ enn vatn í munninn við tilhugsunina um einfalda kjúklingavefju í Hagkaup. Sú vefja var stöðuleikinn í lífi mínu á tímabili. Já, sá sem nær í mig á flugvöllinn í apríl má kippa einni svoleiðis með sér og kókómjólk. Ó kókómjólk..ahh er ég farin að láta hugan reykja og búin að missa þráðinn. Korter frá því að drukkna í eigin slefi, hef ímyndað mér tignarlegri dauðdaga, svona í fullum trúnaði. Hvert var aftur mikilvægi þessa póst? Jú, vefjan. Eru til tilbúin? Gúbbbbs. Njótið!
...ber ekki ábyrgð á óæskilegri munvatnsframleiðslu! En þetta gúmmulaði bráðnar í munni.
Tuesday, March 18, 2014
Friday, March 14, 2014
Gúfferí
Okay, þetta ár hefur aðalega farið í gúfferí og ég stend frammi fyrir því að einn fjórði af því er að verða búinn(námundun gerir allt dramatískara..og við þurfum dramatíkina hér). Þess vegna byrja ég detoxið á morgun...eða eftir helgi. Í dag er/var ... túlkunaratriði, föstudagur. Föstudagar innihalda extra gúff enda tilvalið að verðlauna afrek vikunnar. Þess vegna fór ég hættulega létt með þessa pizzaveislu, snakkpoka og tjahh nokkrar kexkökur. Vil þakka ávaxtasafanum og sítrónuvatninu fyrir að hafa komið í veg fyrir að herlegheitin stæðu í mér.
Þarf því varla að taka það fram að þetta var fullkomið gúffkvöld - og því enn betra að plön morgundagsins séu að liggja í sólbaði með ítölskum fola, með bumbuna út í loftið í ítölsku fjallaþorpi... snilld Dóra. Stigin rúlla inn:)
Ég hlakka til.
Ég vona að ykkar gúff hafi ekki valdið ykkur vonbrigðum! Annars er það ekki jafn skemmtilegt. Njótið helgarinnar:*
Thursday, March 13, 2014
Sólskinsdagur
![]() |
Þetta Ítalíulíf er nú meira vesenið, er alltaf að fá sól í augun...
|
Eyddi sólskinsdeginum með Jón Kalman og súkkulaðihúðuðum hnetum. 20°C, ég kvarta ekki. Var að byrja á hans nýjustu bók Fiskarnir hafa enga fætur og leggst hún vel í mig. Hún er reyndar hæglesin..aðallega vegna þess að mér finnst ég þurfa að skrifa niður aðra hverja setningu, allavega stoppa og melta hana. Konfektmolar. Ég hef alltaf verið fyrir konfekt.
Sunday, March 9, 2014
Sunnudagskvöld - Tom Odell
Með betri sunnudagskvöldum. Píanónótur brotnuðu, míkrafónar hrundu - gæsahúð. Bretar heilla! Farin til Englands.
Verkjaði þó í hjartað yfir því að hafa ekki tekið myndavélina mína með en síminn varð að duga... Er enn með gæsahúð, ástæðan gæti reyndar verið tengd þeirri staðreynd að það er ekkert sérstaklega hlýtt í herberginu mínu í augnablikinu, en ég styð frekar Tom Odell áhrifin! Smá stemming til ykkar - njótið :)
![]() |
| Kát á heimleið! - Nóttina:* |
Friday, March 7, 2014
Friday, Friday, Friday
Föstudagur án allavega einnar sneiðar? Er varla föstudagur..
Þess vegna reyni ég að standa mig. Er svo heppin að þessar ljúffengu slææææsur ( hæ hrollur yfir orðavali, njótið) fást við hliðina á skólanum mínum. Kolvetni - Ljúft!
Eftir að bekkurinn minn náði að bræða úr sér ásamt tölvunum í alltof heitri kennslustofu, að reyna að læra á photoshop ákváðum við að drífa okkur á pöbbarölt. Naviglio Grande varð fyrir valinu! Gæti vanist fleiri jakkadögum og sól! Sátum úti frameftir kvöldi og sötruðum kokteila og röltum svo svolítið um svæðið áður en ég reyndi að rata heim... Stefni á að ná að ganga allar götur Mílanó áður en ég fer heim í sumarfrí. Er alltaf með að minnsta kosti eina blöðru á fótunum, huggulegt. Næst á dagskrá er að rotast yfir sjónvarspsefni og nokkrum poppkornum. Snapshot frá kvöldinu:
Nóttina sykurfroður:*

(..jæks er dottin í vandræðilega kaldhæðni, vona að dáleiðslu, töfrandi myndin mín hér til hliðar tali til ykkar ..held þetta sé gott í bili;)
Subscribe to:
Posts (Atom)